Samstarf ASÍ, SA og RSK
16. maí sl. var undirritaður „Samstarfssamningur um vettvangsheimsóknir á vinnustaði“ milli ASÍ, SA og RSK. Markmið samstarfssamningsins er að með virkum hætti sé lögð áhersla á mikilvægi reglufestu og reglufylgni og stuðla þannig að heilbrigðari starfsháttum. Með því að stuðla að bættri tekjuskráningu, að starfsmenn séu skráðir á launaskrá og að formreglur séu á annan hátt haldnar, má betur tryggja að skil á opinberum gjöldum ásamt lögboðnum og samningsbundnum framlögum til lífeyrissjóða og stéttarfélaga eigi sér stað með sem réttustum hætti. Samhliða leiðbeiningum um skyldur smærri og meðalstórra fyrirtækja verði lögð rík áhersla á að stemma stigu við duldum greiðslum og öðru því sem fellur undir verksvið samstarfsaðila. Samandregið felur verkefnið í sér að kanna og fylgja því eftir að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
Verkefnaskipulag verði í meginatriðum þannig að tekin verði fyrir annars vegar staðbundin starfsemi og hins vegar valdar atvinnugreinar. Framvinda verkefnisins er í höndum verkefnisstjórnar er stýrir vali verkefna og ákveður fyrirkomulag að öðru leyti. Sérstök áhersla verður lögð á ferðaþjónustu og bygginga- og verktakastarfsemi en einnig verður ábendingum frá almenningi og eftirlitsfulltrúum ASÍ/SA fylgt eftir.
Verkefnið mun eins og fyrri samstarfsverkefni framangreindra aðila bera yfirskriftina „Leggur þú þitt af mörkum?“. Verkefnið verður kynnt formlega á næstu dögum og mun fara í fullan gang í byrjun júní.